Ósk um umsögn, aðalskipulagsbreyting, Fjarðarheiðargöng
Mál 2207048 Fyrst á dagskrá 25. júlí 2022, síðast 15. ágúst 2022. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Umhverfis- og skipulagsnefnd.
Í heiti málsins: Skipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2022
Umhverfis- og skipulagsnefnd, fundur 3 liður 14
óskað er eftir umsögn við skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar 2010-2030 í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingarnar tengjast fyrirhuguðum framkvæmdum við jarðgöng undir Fjarðarheiði. Við Seyðisfjörð er um að ræða staðsetningu gangamunna, nýja veglínu og undirgöng, efnistökusvæði, breytta landnotkun vegna færslu á golfvelli auk skilgreininga á nýjum göngu-, hjóla- og reiðleiðum. Greinagerð og uppdrættir eru í viðhengi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við breytinguna
-
Bæjarráð, fundur 760 liður 12.14
Fundargerðin „Umhverfis- og skipulagsnefnd - 3“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.