Fjárhagsáætlun 2022 - viðauki 2
Mál 2207043 Fyrst á dagskrá 11. júlí 2022, síðast 25. ágúst 2022. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2022
Bæjarráð, fundur 758 liður 9
Framlagður viðauki 2 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2022 vegna áhrifa kjarasamninga, framlags vegna lífeyrisskuldbindinga, framkvæmda Fjarðabyggðahafna og íþróttahúss á Reyðarfirði, sölu á Kirkjumel, stofnframlaga vegna almennra leiguíbúða og leiðréttingar í félagsmálum.
Hækkun á launakostnaði samstæðu vegna kjarasamninga og tengdra breytinga nema 77,3 m.kr.
Hækkun á fjárfestingum hafnarsjóðs á Eskifirði og Stöðvarfirði nemi 50 m.kr.
Hækkun á fjárfestingum aðalsjóðs vegna íþróttahúss nemi 90 m.kr .
Lesa alla bókunina (139 orð til viðbótar)
Hækkun framlags til Brúar lífeyrissjóðs vegna Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar nemi 85 m.kr.
Hækkun almennra rekstrargjalda aðalsjóðs vegna sölu Kirkjumels um 3,1 m.kr. og lækkun fjárfestinga um 22 m.kr.
Hækkun á fjárfestingum félagslegra íbúða vegna stofnframlaga um 11 m.kr.
Hækkun almennra rekstrargjalda vegna framlaga til málefna fatlaðra nemi 33 m.kr.
Aukin lántaka vegna breytinga á fjárhagsáætlun ársins nemi 300 m.kr.
Viðauki hefur þau áhrif að rekstrarniðurstaða í A hluta lækkar um 125 m.kr. og er neikvæð um 67 m.kr., í B hluta lækkar niðurstaðan um 7 m.kr. Rekstrarniðurstaða samstæðu lækkar um 132 m.kr og verður jákvæð um 515 m.kr. Eigið fé einstakra stofnana og viðskiptareikningar þeirra við Aðalsjóð breytast til samræmis. Sjóðsstaða verður í árslok 2022 jákvæð um 99 m.kr.
Bæjarráð samþykkir viðauka 2 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar árið 2022 með fullnaðarumboði sem bæjarstjórn hefur veitt bæjarráði meðan á sumarleyfi hennar stendur.
-
Bæjarstjórn, fundur 336 liður 2.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 758“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.