Lánasamningur vegna 300 m.kr. láns nr. 2207-22
Mál 2206099 Fyrst á dagskrá 11. júlí 2022, síðast 25. ágúst 2022. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2022
Bæjarráð, fundur 758 liður 10
Bæjarráð Fjarðabyggðar samþykkir með 2 atkvæðum í umboði bæjarstjórnar eftir fullnaðarumboði sem því er falið meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól að kr.300.000.000, með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem bæjarráð hefur kynnt sér.
Lesa alla bókunina (129 orð til viðbótar)
Bæjarráð samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum sveitarfélagsins sem fela í sér að vera verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Jóni Birni Hákonarsyni, bæjarstjóra, kt. 270173-3149, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Kristinn Þór Jónasson situr hjá.
-
Bæjarstjórn, fundur 336 liður 2.10
Fundargerðin „Bæjarráð - 758“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.