Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2021

Gjaldskrár íþróttahúsa Fjarðabyggðar 2022

Mál 2109082 Fyrst á dagskrá 25. október 2021, síðast 4. nóvember 2021. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárÍþróttir og tómstundir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2021

    Bæjarráð, fundur 731 liður 29

    Lagðar fram gjaldskrár íþróttahúsa sem samþykktar hafa verið í íþrótta- og tómstundanefnd með þeim breytingum að salir eru einungis leigðir út til íþróttastarfs (ekki heimilt að halda afmæli) og að leigutaka ber að ganga snyrtilega um allt húsnæði og taka með sér allt rusl og aðra muni. Jafnframt er bætt við ákvæði um að leigusali áskilji sér rétt að rukka aukalega fyrir öll aukaþrif. Bæjarráð samþykkir breytingar og 2,4% hækkun á gjaldskrám íþróttahúsa sem taki gildi 1.janúar 2022.

  2. Bæjarstjórn, fundur 321 liður 2.29

    Fundargerðin „Bæjarráð - 731“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is