Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2021

735 Marbakki 7 - Beiðni um stækkun lóðar

Mál 2106080 Fyrst á dagskrá 21. júní 2021, síðast 24. júní 2021. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 24. júní 2021, frá 0:29:52

Í heiti málsins: Lóðir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  • Upptaka af umræðu
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2021

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 291 liður 1

    Lögð fram umsókn Eskju hf, dagsett 10. júní 2021, þar sem óskað er eftir stækkun lóðar fyrirtækisins að Marbakka 7 á Eskifirði vegna fyrirhugaðrar stækkunar löndunarhúss. Samþykki hafnarstjórnar vegna stækkunar lóðarinnar liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir stækkun lóðarinnar fyrir sitt leyti. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs. Jafnframt er samþykkt að fara með breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breyting hefur ekki áhrif á aðra en umsækjanda og höfnina.

  2. Bæjarstjórn, fundur 315 liður 18

    Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir máli. Lögð fram umsókn Eskju hf, dagsett 10. júní 2021, þar sem óskað er eftir stækkun lóðar fyrirtækisins að Marbakka 7 á Eskifirði vegna fyrirhugaðrar stækkunar löndunarhúss. Samþykki hafnarstjórnar vegna stækkunar lóðarinnar liggur fyrir. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt stækkun lóðarinnar fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs. Jafnframt er samþykkt að fara með breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breyting hefur ekki áhrif á aðra en umsækjanda og höfnina.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir stækkun lóðarinnar í umboði bæjarráðs með 9 atkvæðum.

    Upptaka bæjarstjórnarfundar 315. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube

    Sjálfvirk uppskrift af kaflanum

    Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.

    • 0:29:52 þá er það liður átján marbaki sjö sundurþrjóttur við eskifirði beiðni um stækkun lóðar við bæjarfulltrúa að slökkva á sínum fyrir hérna aftur en átjándi liður marbaki sjö sjúndurþrjónur við eskí fyrir beiðni stækkun lónar hafa lögð fram umsókn eskju háef dagsetjunda júní tvöld tuttugu og eitt
    • 0:30:20 húnítið er tuttugu og eitt þar sem óskað er eftir stækkun lóðarfyrirtækisins á marbækar sjö æskifir vegna fyrirvara stækkunar löndunarhúss samþykkti bæjarstjórn lóðarinnar fyrir vegna stækkun lónarinnar og eignastíflason og umhverfisnefnd hefur samþykkt stækkun lórðarinnar fylg sitt leyti og endanlegri afgreiðslu var vísað til bæjaráðs jafnframt
    • 0:30:48 afgreiðslu var vísað til bæjarráðs jafnframt var samþykkt að fara með breytingar á deiliskjörfélagi samræmi við þriðju málsgrein bestust og þriðju greinars skipulagslaganúmerið hundrað tuttugu og þrjú þúsund og tíu þar sem breyting hefur ekki áhrif á aðra en umsækjanda og höfnina og þetta er liður einmitt einnig sem við höfum þá fullna afgreiðslu meðhyrnibæjarstjórinn í dag þeir sem orðið er laust um þennar lið engin bið um orðið þá spyrjandi samþykka samþykka
  3. Bæjarstjórn, fundur 315 liður 5.1

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 291“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is