Umhverfi og búnaður við Andapollinn á Reyðarfirði
Mál 2101210 Fyrst á dagskrá 8. febrúar 2021, síðast 18. febrúar 2021. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Reyðarfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 281 liður 11
Lagt fram bréf Árna Páls Ragnarssonar, dagsett 27. janúar 2021, þar sem bent er á mögulega hættu sem kann að skapast ef barn færi niður í gegnum ís á Andapollinum á Reyðarfirði. Jafnframt er bent á að enginn björgunarbúnaður er til staðar á svæðinu og að rétt sé að athuga hvort dýpi sé of mikil.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið og ábendinguna og vísar því til skoðunar framkvæmdasviðs.
-
Bæjarstjórn, fundur 307 liður 2.11
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 281“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.