Skipulagsmál í Stöðvarfirði - beitiland og friðun svæða
Mál 2004149 Fyrst á dagskrá 11. maí 2020, síðast 28. maí 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: StöðvarfjörðurSkipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 259 liður 16
Lagt fram bréf Ívars Ingimarssonar fh. eiganda Óseyrar í Stöðvarfirði vegna sauðfjárbeitar og friðunar vegna hennar í Stöðvarfirði samkvæmt aðalskipulagi. Jafnframt er óskað eftir að fagstofnanir eins og Landgræðslan, Skógræktin og Náttúrustofa Austurlands verði hafðar með í ráðum á þeim stigum skipulagsferlis við endurskoðun Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027 sem framundan eru.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar bréfritara erindið en bendir jafnframt á að umræddar fagstofnanir eru í skipulags- og matslýsingu vegna endurskoðunar aðaskipulagsins tilgreindar sem umsagnaraðilar.
-
Bæjarráð, fundur 664 liður 30.16
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 259“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 292 liður 4.16
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 259“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.