Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Innkaup í Fjarðabyggð

Mál 2004018 Fyrst á dagskrá 6. apríl 2020, síðast 16. apríl 2020. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Bæjarráð, fundur 657 liður 9

    Framlögð tillaga Rúnars M. Gunnarssonar f.h. Miðflokksins í Fjarðabyggð um innkaup í heimabyggð. Tillagan er að gripið verði til aðgerða sem snúa að viðskiptum sveitarfélagsins við fyrirtæki og þjónustuaðila á svæðinu.

    Lesa alla bókunina (145 orð til viðbótar)

    Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur áður hvatt stofnanir sveitarfélagsins sem og íbúa til að beina viðskiptum sínum til fyrirtækja sem hér starfrækja þjónustu í sveitarfélaginu og ítrekar það ekki síður nú í þessu árferði sem er. Þá hefur bæjarstjórn ávallt samþykkt bókanir þess efnis sem komið hafa frá bæjarráði. En rétt er að hafa í huga að sveitarfélagið vinnur einnig eftir samþykktum innkaupareglum sem byggðar eru á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 sem einnig bindur hendur sveitarfélaga. Samband sveitarfélaga hefur farið þess á leit við fjármálaráðuneytið að viðmiðunarfjárhæðir þeirra laga verði tímabundið rýmkaðar en niðurstaða í því er ekki kominn. Engu að síður ítrekar bæjarráð fyrri bókanir sínar um málið og telur að það sé í samræmi við hugmyndir sem fulltrúi Miðflokksins leggur til í tillögu sinni. Fulltrúi Miðflokksins telur að markmið tillögu sinnar sé náð með bókun þessari og óskar því ekki eftir afgreiðslu hennar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 290 liður 2.9

    Fundargerðin „Bæjarráð - 657“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is