COVID viðbragðsáætlun og samskipti
Mál 2003080 Fyrst á dagskrá 1. apríl 2020, síðast 16. apríl 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Fræðslunefnd, fundur 82 liður 1
Fyrir liggur minnisblað frá fræðslustjóra þar sem greint er frá starfinu í leik-, grunn- og tónlistarskólum í Fjarðabyggð. Í öllum skólum hefur verið haldið út mikilli og góðri þjónustu fyrir alla nemendur og fullri þjónustu fyrir forgangshópa. Álag hefur óneitanlega verið mikið þar sem skólar þurftu að fara í miklar breytingar á stundatöflum, svæðaskipta þurfti skólunum, breyta umgengisreglum og kennslufyrirkomulagi og taka upp fjarnámi að hluta eða öllu leyti hjá elstu nemendum og tónlistarskólanemendum. Skólar eru viðbúnir að taka upp frekari takmarkanir á skólastarfi þurfi á því að halda. Fræðslunefnd færir nemendum og starfsfólki skóla bestu þakkir fyrir þeirra framlag á þessum fordæmalausu tímum, þau eiga mikið hrós skilið.
-
Bæjarráð, fundur 657 liður 11.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 82“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 290 liður 8.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 82“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.