Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

740 Norðfjarðará - framkvæmdaleyfi, efnistaka

Mál 2002041 Fyrst á dagskrá 10. febrúar 2020, síðast 20. febrúar 2020. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurByggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 252 liður 9

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Graftrar ehf vegna allt að 3.000 rm efnistöku á fimm árum norðan við ósa Norðfjarðarár, dagsett 7. febrúar 2020, ásamt lýsingu á fyrirhugaðri efnistöku, umgengni og frágangi í lok vinnslutíma og hnitsettri afmörkun efnistöku- og lagerssvæðisins. Lögð fram umsögn Veiðifélags Norðfjarðarár.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir efnistöku til fimm ára að fenginni jákvæðri umsögn Fiskistofu. Efnistökusvæði verði skipt upp í samráði við umhverfis- og skipulagssvið.

  2. Bæjarstjórn, fundur 286 liður 3.9

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 252“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is