Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

740 Urðarbotnar - Umsókn um stöðuleyfi

Mál 2001113 Fyrst á dagskrá 23. mars 2020, síðast 30. mars 2020. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 255 liður 12

    Lögð fram stöðuleyfisumsókn Héraðsverks ehf, dagsett 13. janúar 2020, þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir vinnubúðir fyrirtækisins ofan tjaldsvæðisins á Norðfirði vegna framkvæmda við snjóflóðavarnir í Urðarbotnum og Sniðgili. Aðkoma að vinnubúðum er fyrirhuguð frá Víðimýri. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um umsókn um stöðuleyfi, stöðuleyfi, starfsmannabúðir og leyfisveitingar vegna þeirra, dagsett 21. mars 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt útgáfu stöðuleyfis vegna vinnubúða ofan tjaldsvæðis þar sem staðsetning samræmist ekki þeirri staðsetningu sem gert hefur verið ráð fyrir. Auk þess samræmist umsókn ekki gr. 6.11.8 um starfsmannabúðir í byggingarreglugerð nr. 112/2012.

  2. Bæjarráð, fundur 656 liður 10.12

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 255“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is