Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki 5

Mál 1909026 Fyrst á dagskrá 6. september 2019, síðast 12. september 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Bæjarráð, fundur 629 liður 1

    Framlagður viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2019. Viðaukinn er til að mæta viðhaldskostnaði og endurbótum á hjúkrunarheimilinu Uppsalir á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð vísar viðauka til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 274 liður 6

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.

    Ragnar Sigurðsson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu liðar.

    Vísað frá bæjarráði til staðfestingar bæjarstjórnar viðauka 5 við fjárhagsáætlun 2019. Viðaukinn felur í sér að útgjöld í málaflokknum 03 heilbrigðismál hækki um 14,5 m.kr. og fari úr um 18,5 m.kr. í rúmar 33 m.kr. Enn fremur er lagt til að þessi hækkun rekstrarkostnaðar lækki rekstrarniðurstöðu Aðalsjóðs og lækki sjóð og eigið fé Aðalsjóðs um sömu upphæð.

    Handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um 14,5 m.kr. frá fjárhagsáætlun ársins og verða 254.996.000 kr. í árslok 2019.

    Enginn tók til máls.

    Viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2019 staðfestur með 8 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 274 liður 2.1

    Fundargerðin „Bæjarráð - 629“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is