Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

735 Dalbraut 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi, tengivirki

Mál 1906140 Fyrst á dagskrá 1. júlí 2019, síðast 8. júlí 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 237 liður 6

    Dalbraut 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Landsnets hf, dagsett 28. júní 2019, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 250 fm, 132 kv tengivirki að Dalbraut 4 á Eskifirði. Byggingin verður tvískipt, annars vegar rofasalur og stjórnrými og hins vegar tvö spennarými.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu þar til frekari gögn hafa borist.

  2. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 238 liður 6

    Lögð fram að nýju byggingarleyfisumsókn Landsnets hf, dagsett 28. júní 2019, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 266 fm og 1764 rm, 132 kv tengivirki að Dalbraut 4 á Eskifirði. Byggingin verður tvískipt, annars vegar rofasalur og stjórnrými og hins vegar tvö spennarými. Lögð fram yfirlýsing RARIK ofh, um að ákveðið hafi verið að í samráði við Landsnet hf verði framkvæmd hljóðmæling umhverfis húsið og að ráðgjafi leggi fram tillögur að úrbótum sem muna stuðla að bættri hljóðvist umhverfis stöðina.

    Í ljósi yfirlýsingar RARIK ofh samþykkir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd byggingaráformin.

  3. Bæjarráð, fundur 623 liður 11.6

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 237“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Dalbraut 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is