Erindi starfshóps Ungmennafélagsins Vals um nýtt íþróttahús.
Mál 1906122 Fyrst á dagskrá 1. júlí 2019, síðast 15. ágúst 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 622 liður 4
Framlagt bréf starfshóps Ungmennafélagsins Vals um nýtt íþróttahús á Reyðarfirði þar sem boðin er fram aðstoð við hönnun og teikningu á nýju íþróttahúsi á Reyðarfirði.
Bæjarráð þakkar erindið og vísar því til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og íþrótta- og tómstundanefndar til skoðunar. Jafnframt er bæjarráði ljóst að ástandi íþróttahússins á Reyðarfirði er ábótavant en endurbætur eru ekki á áætlun á næstu árum. Endurbætur á Fjarðabyggðahöllinni eru í forgangi sem stendur en horft verður til endurbóta á íþróttahúsinu á komandi árum.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 238 liður 2
Lagt fram til kynningar bréf starfshóps Ungmennafélagsins Vals, dagsett 19. júní 2019, um nýtt íþróttahús á Reyðarfirði þar sem boðin er fram aðstoð við hönnun og teikningu á nýju íþróttahúsi á Reyðarfirði. Erindi vísað frá bæjarráði til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til skoðunar.
-
Bæjarstjórn, fundur 272 liður 1.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 622“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.