Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

740 Skuggahlið - Framkvæmdaleyfi, efnistaka

Mál 1905069 Á dagskrá 13. maí 2019. 1 færsla í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  1. 2019

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 233 liður 7

    Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Mannvits hf. fh. landeiganda Skuggahlíðar í Norðfirði, dagsett 9. maí 2019, þar sem sótt er um leyfi til allt að 49.000 m3 efnistöku úr landi Skuggahlíðar, í malarhöllum sunnan Norðfjarðarár. Gert er ráð fyrir að efnistaka sé til fimm ára. Efnið á að nýta í ýmiskonar verkefni. Ekki er gert ráð fyrir efnistöku í malarhöllum sunnan Norðfjarðarár í landi Skuggahlíðar samkvæmt Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að gera óverulega breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 svo hægt sé að gera ráð fyrir efnistöku úr malarhöllunum. Endanlegri ákvörðun er vísað til bæjarstórnar.