Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Ósk um að byggja aðstöðuhús fyrir félagastarfsemi við Melbæ

Mál 1905009 Á dagskrá 6. maí 2019. 1 færsla í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  1. 2019

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 232 liður 11

    Lagt fram bréf Félags eldri borgara á Eskifirði, dagsett 30. apríl 2019, þar sem óskað er eftir stuðningi Fjarðabyggðar við að byggja upp aðstöðu fyrir félagastarfsemi félagsins við Melbæ á Eskifirði. Um er að ræða 14,99 fm hús sem ætlað er undir handavinnu af ýmsu taki við smíðar úr timbri. Óskað er eftir stuðningi við kaup á húsinu en félagsmenn munu sjálfir sjá um uppsetningu og standsetningu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti áform um að reisa aðstöðu fyrir félagastarfsemi við Melbæ og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vera í sambandi við félagið. Beiðni vegna styrks er vísað til bæjarráðs.