760 Ormsstaðir 2 - Framkvæmdaleyfi, skógrækt
Mál 1905007 Fyrst á dagskrá 8. febrúar 2021, síðast 18. febrúar 2021. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2021
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 281 liður 9
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Skógræktarinnar þar sem gert er ráð fyrir 139 ha skógræktarsvæði í landi Ormsstaða 2 í Breiðdal. Umsögn Minjastofnunar Íslands liggur fyrir. Fyrirhuguð skógrækt fellur undir flokk C í 1. viðauka við lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að ekki sé um matsskylda framkvæmd að ræða og samþykkir umsóknina og útgáfu framkvæmdaleyfis.
-
Bæjarstjórn, fundur 307 liður 2.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 281“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.