Tekjutap vegna frystingu framlags ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2020 og 2021
Mál 1903109 Fyrst á dagskrá 18. mars 2019, síðast 21. mars 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 605 liður 19
Framlögð bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna áforma ríkisvaldsins um skerðingu framlaga til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir með stjórn Sambands Íslenskra Sveitarfélaga í bókun hennar vegna boðaðrar skerðingar á framlögum í Jöfnunarsjóð Sveitarfélaga. Ljóst er að við þetta verður ekki unað og hvetur bæjarráð Fjarðabyggðar stjórnvöld til að hverfa frá þessari ákvörðun. Taka þess í stað upp viðræður við sveitarfélögin hvernig skuli mæta þeim forsendubresti í fjármálum þeirra sem nú blasir við vegna aðstæðna í sjávarútvegi og fleiri þáttum. Það hlýtur að vera sameiginlegt áherslumál þessara tveggja stjórnsýslustiga að afkoma þeirra sé viðundandi, en ekki einungis að afkoma ríkissjóðs sé jákvæð á kostnað sveitarfélaga.
-
Bæjarstjórn, fundur 265 liður 2.19
Fundargerðin „Bæjarráð - 605“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.