86.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar
Mál 1903028 Fyrst á dagskrá 18. mars 2019, síðast 21. mars 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Samgöngur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 605 liður 18
Tillaga til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar, 86. mál, 2019.
Lagt fram til kynningar erindi dagsett 6. mars 2019 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar, 86. mál 2019.
Bæjarráð Fjarðabyggðar bókar eftirfarandi.
Lesa alla bókunina (107 orð til viðbótar)
Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir efni þingsályktunartillögu að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjarvíkurflugvallar. Reykjavíkurflugvöllur er í dag miðstöð innanlands- og sjúkraflugs og staðsetning hans því lykilatriði þangað til jafngóður eða betri kostur verður tilbúinn til notkunar. Þá er ekki síður mikilvægt að hafa í huga að á höfuðborgarsvæðinu hefur öll opinber þjónusta landsins sínar höfuðstöðvar ásamt annari þjónustu sem íbúar landsbyggðarinnar þurfa að leita til. Því gegnir Reykjavíkurflugvöllur mikilvægu og fjölþættu hlutverki í samgöngum íbúa Austurlands sem annara á landsbyggðinni til að einfalda þeim að leita eftir þessari þjónustu í höfuðborginni okkar allra. Því er eðlilegt að kallað verði eftir skoðunum landsmanna allra á staðsetningu hans.
-
Bæjarstjórn, fundur 265 liður 2.18
Fundargerðin „Bæjarráð - 605“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.