Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Umsögn varðandi starfsleyfisdrög Egersund vegna hreinsunar neta fyrir fiskeldi

Mál 1903021 Fyrst á dagskrá 11. mars 2019, síðast 21. mars 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Sjávarútvegur og fiskeldi

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 227 liður 12

    Lagður fram póstur Heilbrigðiseftirlits Austurlands, dagsettur 5. mars 2019, þar sem upplýst er að Egersund Island hafi sótt um starfsleyfi fyrir aðstöðu til að þvo og meðhöndla net fyrir fiskeldi við Hafnargötu 2 á Eskifirði. Í samræmi við gr. 6 í reglugerð 550/2018 um losun frá iðnaði og mengunarvarnaeftirlit hafa drög að starfsleyfi Heilbrigðisnefndar verið birt á heimasíðu HAUST.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við drögin.

  2. Bæjarstjórn, fundur 265 liður 4.12

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 227“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is