Staða ungmennaráðs Fjarðabyggðar
Mál 1901159 Á dagskrá 28. janúar 2019. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarráð.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 597 liður 9
Vísað frá fundi ungmennaráðs og bæjarstjórnar. Kjartan Mar Garski Ketilsson fjallaði um stöðu ungmennaráðs Fjarðabyggðar. Hann vill veg ungmennaráðs meiri og telur að nefndarmenn ættu að fá greitt fyrir fundarsetu, með sama hætti og aðrir nefndarmenn sveitarfélagsins. Hann benti í því sambandi á að farið er að greiða ungmennaráði Fljótsdalshéraðs fyrir fundarsetu. Auk þess telur Kjartan að virkja þurfi ráðið betur með því að vísa þangað fleiri málum og leita álits ráðsins. Bæjarráð er sammála ungmennaráði um að vísa megi fleiri málum til ráðsins en felur bæjarritara og forseta bæjarstjórnar að koma með tillögur að framtíðarskipan ráðsins.