Reglur fyrir frístundaheimili í Fjarðabyggð
Mál 1805154 Á dagskrá 12. september 2018. 1 færsla í fundargerðum hjá: Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Fræðslunefnd, fundur 59 liður 7
Vegna sameiningar sveitarfélaganna Breiðdalshrepps og Fjarðabyggðar er verið að endurskoða reglur sveitarfélaganna. Reglur fyrir frístundaheimili í Fjarðabyggð eru þar á meðal, en gildandi reglur í Fjarðabyggð eru frá árinu 2003. Í ár voru gefin út metnaðarfull markmið og viðmið um gæði starfs á frístundaheimilum á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Fræðslunefnd leggur til umtalsverðar breytingar á gildandi reglum sem taka mið af nýjum markmiðum og viðmiðum. Fræðslunefnd samþykkir nýjar reglur og vísar þeim áfram til bæjarráðs.