Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Beiðni um afnot af íþróttahúsinu á Stöðvarfirði fyrir dansleik vegna afmælishátíðar Súlunnar

Mál 1805101 Fyrst á dagskrá 29. maí 2018, síðast 8. júní 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: StöðvarfjörðurÍþróttir og tómstundirMenning og söfn

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Bæjarráð, fundur 566 liður 2

    Á árinu eru 90 ár liðin frá því Ungmennafélagið Súlan á Stöðvarfirði var stofnað. Í tilefni þess stendur til að halda upp á afmælið með hátíðardagskrá 29.júni til 1.júlí 2018. Súlan óskar eftir því að fá gjaldfrjáls afnot af íþróttahúsinu á Stöðvarfirði fyrir dansleik laugardagskvöldið 30. júní.

    Bæjarráð samþykkir afnot af húsnæðinu. Jafnframt veitir bæjarráð Ungmennafélaginu Súlunni styrk sem nemur húsaleigu. Tekið af liðnum óráðstafað.

  2. Bæjarstjórn, fundur 246 liður 2.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 566“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is