Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Tækninotkun í skólastarfi í Fjarðabyggð

Mál 1802057 Á dagskrá 28. febrúar 2018. 1 færsla í fundargerðum hjá: Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  1. 2018

    Fræðslunefnd, fundur 52 liður 1

    Tekin var til umræðu tölvupóstur frá Helgu Ósk Snædal Þórormsdóttur grunnskólakennara í Fjarðabyggð, sem meðfram kennslu stundar meistaranám í upplýsingatækni við Háskólann á Akureyri. Í tölvupóstinum og meðfylgjandi bæklingi sem hún ásamt öðrum nema við HA útbjó í skólanum fjallar hún um tækninotkun í skólastarfi og fyrirsjáanlegar breytingar bæði hvað varðar kennaranám og endurmenntun kennara sem og kennsluhætti í skólum. Fram kemur að víða er hafið gott starf í grasrótinni sem nauðsynlegt er að styðja vel við en einnig er kallað eftir kennslufræðilegri leiðsögn í UT innan skólanna. Fræðslustjóri sagði þetta vera eitt af viðfangsefnum skólanna. Hann gat þess að á síðasta fundi grunnskólastjóra hefðu UT málin verið til umræðu og rætt hvernig hægt væri að styrkja það starf, m.a. með kennsluráðgjöf. Hann sagði frá menntabúðum kennara, grasrótarstarfi kennara, sem hann hefði fengið að taka þátt í og sveitarfélagið hefði styrkt og tók fram að mikilvægt væri að styðja vel við slíkt frumkvöðlastarf í skólunum. Fræðslunefnd þakkar fyrir tölvupóstinn og felur fræðslustjóra og skólastjórnendum að fylgja málinu eftir og vísar málinu til umræðu um starfs- og fjárhagsáætlun 2019.