Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Beiðni um flotbryggju og uppbyggingu aðstöðu fyrir sumarlegu skemmtibáta við Egilsbraut 26, Norðfirði

Mál 1802004 Fyrst á dagskrá 2. febrúar 2018, síðast 6. mars 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Hafnarstjórn.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurHafnir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Hafnarstjórn, fundur 191 liður 1

    Erindi hefur borist hafnarstjórn frá eigendum ferðaþjónustunnar Hildibrand þar sem óskað er eftir viðræðum um uppbyggingu fyrir skemmtibáata við sjóhús og veitingastaðinn Beituskúrinn við Egilsbraut 26. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að kanna möguleika á skammtímastaðsetningu flotbryggju við miðbæjarsvæðið í Neskaupstað.

  2. Hafnarstjórn, fundur 193 liður 6

    Farið yfir minnisblað og kostnaðarmat vegna möguleika á flotbryggjum í miðbæ Neskaupstaðar. Hafnarstjórn álítur að ekki séu forsendur til að hafnarsjóður standi straum af kostnaði við flotbryggjur sem tengjast bryggjumannvirkjum einkaaðila og hafnar því erindi frá ferðaþjónustinni Hildibrand. Kostnaður við skammtímauppsetningu á flotbryggjum í miðbæ Neskaupstaðar er ekki á fjárhagsáætlun ársins 2018, því er ekki heimilt að ráðast í framkvæmdina. Hins vegar telur hafnarstjórn að flotbryggjur séu spennandi kostur í miðbæ Neskaupstaðar og útilokar ekki að skoða þann kost síðar.