Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Breyting á skóladagatali leikksólanna Dalborgar og Lyngholts

Mál 1712049 Fyrst á dagskrá 13. desember 2017, síðast 18. desember 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Fræðslunefnd, fundur 49 liður 3

    Fyrir liggur minnisblað frá fræðslustjóra þar sem fram kemur að beiðni hafi borist frá skólastjórnendum leikskólanna Dalborgar á Eskifirði og Lyngholts á Reyðarfirði um breytingu á skóladagatölum skólanna. Í báðum tilfellum er um að ræða flutning á skipulagsdögum og í báðum tilfellum er búið að bera flutninginn undir foreldraráð skólanna sem hafa samþykkt hann fyrir sitt leyti.

    Á leikskólanum Dalborg er um að ræða flutning á skipulagsdegi sem átti að vera 1. júní 2018 til 2. janúar sama ár. Ástæðan er sú að mikil þörf er á að fá skipulagsdag til að skipuleggja vorönnina.

    Í leikskólanum Lyngholti er um að ræða flutning á skipulagsdegi sem átti að vera 4. júní 2018 til 2. janúar sama ár. Ástæðan er sú að verið er að opna nýja leikskóladeild í Félagslundi og þörf á tíma til að skipuleggja skólastarfið sem best fyrir alla nemendur. Fræðslunefnd samþykkir beiðnina.

  2. Bæjarráð, fundur 546 liður 12.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 49“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is