Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 2018
Mál 1711167 Fyrst á dagskrá 13. desember 2017, síðast 18. desember 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Fræðslunefnd, fundur 49 liður 1
Fyrir liggur tillaga fræðslustjóra að sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð sumarið 2018. Þriðjudaginn 5. desember var haldinn fundur um sumarlokun leikskóla í Fjarðabyggð, þar sem mættir voru fulltrúar skólastjórnenda, Fjarðaforeldra og atvinnulífs. Á fundinum var rætt um lengd og fyrirkomulag sumarlokunar. Tillagan byggir á þeirri umræðu sem og reglum Fjarðabyggðar um leikskóla. Sumarlokunin verður í 4 vikur, 20 virka daga og sumarlokun skólanna spannar liðlega tvo mánuði. Tillaga að sumarlokun 2018 er sem hér segir:
Lesa alla bókunina (66 orð til viðbótar)
Lyngholt
14.06
- 11.07 báðir dagar meðtaldir
Eyrarvellir
28.06
- 25.07 báðir dagar meðtaldir
Kæribær
09.07
- 03.08 báðir dagar meðtaldir
Stöðvarfjarðarskóli
09.07
- 03.08 báðir dagar meðtaldir
Dalborg
18.07
- 16.08 báðir dagar meðtaldir
Þá geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna samfellt sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis.
-
Bæjarráð, fundur 546 liður 12.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 49“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.