Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Vinna við forvarnir fyrir árið 2018

Mál 1711033 Fyrst á dagskrá 13. desember 2017, síðast 18. desember 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Fræðslunefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Fræðslunefnd, fundur 49 liður 5

    Fræðslustjóri gerði grein fyrir þremur forvarnarviðburðum sem fyrirhugaðir eru á vorönn 2018. Viðburðirnir eru Forvarnir og fræðsla um hættur við rafsígarettur, fyrirhugaður 22. og 23. janúar. Forvarnardagur VA, foreldrafélags VA og Nesskóla og fjölskyldusviðs er fyrirhugaður 23. og 24. febrúar og 5. og 6. mars verður kynfræðsla sem Siggu Dögg Arnardóttir mun annast. Í tengslum við þessa viðburði verða fyrirlestrar fyrir almenning. Einnig kom fram að Fjarðaforeldrar í samráði við fjölskyldusvið hafa hug á að koma á forvarnarviðburði um snjalltæki. Fræðslunefnd fagnar framtakinu og vonast til að mæting verði góða.

  2. Bæjarráð, fundur 546 liður 12.5

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 49“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is