Fyrirspurn til fræðslunefndar vegna rannsóknar
Mál 1710161 Fyrst á dagskrá 8. nóvember 2017, síðast 16. nóvember 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Fræðslunefnd, fundur 48 liður 8
Fyrirspurn barst til fræðslunefndar frá foreldri vegna fyrirkomulags rannsóknar sem lögð var fyrir nemendur í grunnskóla og framhaldsskóla haustið 2017. Rannsakendur höfðu fengið leyfi fræðslustjóra og skólastjóra viðkomandi grunnskóla þegar fyrir lá að rannsókninni væri stjórnað af lektor við HÍ og tekið fram að meðhöndlun allra rannsóknagagna yrði samkvæmt ströngustu reglum um trúnað og nafnleynd og farið yrði eftir íslenskum lögum er varða persónuvernd, vinnslu og eyðingu frumgagna. Einnig lá fyrir að rannsakendur myndu halda kynningafund fyrir foreldra og fá samþykki nemenda og foreldra. Fræðslunefnd leggur áherslu á að reglum um uplýst samþykki sé ætíð fylgt. Nefndin felur fræðslustjóra að svara fyrirspurninni og koma áleiðis athugasemdum til rannsakenda.
-
Bæjarstjórn, fundur 232 liður 4.8
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 48“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.