730 Sléttuá - Framkvæmdaleyfi, efnistaka
Mál 1709151 Fyrst á dagskrá 25. september 2017, síðast 3. október 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 186 liður 16
Lagt fram erindi Guðjóns Magnússonar fh. Vegagerðarinnar, dagsett 22. september 2017 þar sem óskað er eftir heimild til að vinna 2.500- til 3.000 m3 af efni úr Sléttuá innan við ármót Stuðlaár. Gert er ráð fyrir að flytja efnið úr eyrinni upp á árbakka norðan ár þar sem það verður malað og haugsett. Efni verður þvegið við vinnsluna. Skolvatn vegna þvottar verður hreinsað með því að veita því í 3-4 settjarnir þar sem fínefni setjast til áður en vatninu er veitt út í farveg Sléttuár.
Fyrirhugað efnistökusvæði er í samræmi við Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og
byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
Bæjarstjórn, fundur 229 liður 3.16
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 186“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.