Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

715 Friðheimar/Fjörður - Efnistaka

Mál 1708172 Fyrst á dagskrá 4. september 2017, síðast 21. september 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 184 liður 10

    Lagt fram erindi Guðjóns Magnússonar fh. Vegagerðarinnar, dagsett 31. ágúst 2017 þar sem óskað er eftir heimild til að vinna 3.000 m3 af efni. Fyrirhuguð efnistaka er úr áreyrum og skriðufót innst í Mjóafirði í landi Friðheima og Fjarðar og er ætlað í viðhald yfirborðs vega í firðinum. Fyrirhugað efnistökusvæði er í samræmi við Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027. Vegagerðin fékk leyfi fyrir efnistöku á sama svæði í september 2013 en nýtti ekki.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og

    byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar samþykki allra landeiganda liggur fyrir.

  2. Bæjarstjórn, fundur 228 liður 3.10

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 184“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is