740 Viðfjörður - byggingarleyfi, heimavirkjun
Mál 1708159 Fyrst á dagskrá 4. september 2017, síðast 21. september 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 184 liður 6
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Páls Freysteinssonar fh. landeiganda Viðfjarðar, dagsett 12 júlí 2017, þar sem sótt er um leyfi til reisa um 15 kW heimarafstöð á jörðinni með því að virkja Krókslæk. Um er að ræða rafstöð með rennslis inntak í um 100 m.h.y.s. og um 400 m langa lögn að um 12 m2 rafstöðvarhúsi og þaðan um 900 m jarðstreng að íbúðarhúsinu í Viðfirði. Raforka verður nýtt til að kynda húsið í Viðfirði. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 1. september 2017, um reit O7/N4/Hv3 innan aðalskipulags og gerð heimarafstöðva innan reitsins.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið þegar tilskyldar umsagnair liggja fyrir.
-
Bæjarstjórn, fundur 228 liður 3.6
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 184“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.