Göngustígur við enda Stekkjarholts Reyðarfirði
Mál 1707114 Fyrst á dagskrá 21. ágúst 2017, síðast 7. september 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: ReyðarfjörðurSamgöngur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 182 liður 7
Lagt fram ódagsett bréf Birgittu Rúnarsdóttur þar sem óskað er eftir göngustíg við enda Stekkjarholts á Reyðarfirði og að stíg sem er ofan við bæinn. Gangbraut væri yfir Stekkinn þar sem stígurinn þverar götuna. Einnig er bent á að stígurinn ofan bæjarins sé grófur þar sem hann tengist inn á Stekk.
Áætlanir sveitarfélagsins gera ráð fyrir göngustígum frá Stekkjarholti að Stekk og með Stekk og Réttarholti að Búðareyri. Eins er reiknað með tenginum frá Stekkjarhverfinu að Réttarholti.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið og vísar til vinnu við göngu- og hjólastíga og fjárhagsáætlunargerðar.
-
Bæjarstjórn, fundur 227 liður 4.7
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 182“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.