Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

730 - Takmarkanir á akstri um Sunnugerði

Mál 1707105 Fyrst á dagskrá 21. ágúst 2017, síðast 7. september 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 182 liður 10

    Lagt fram bréf Ástu Einarsdóttur og Bjarna Guðmundar Bjarnasonar íbúa við Sunnugerði 15 á Reyðarfirði, dagsett 24. júlí 2017, þar sem óskað er eftir að Sunnugerði verði aftur opnuð fyrir gegnum akstur vegna óþæginda sem lokun í einstefnugötu hefur í för með sér.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti á fundi sínum 20. mars síðastliðinn að tilraun yrði gerð til 1. október næstkomandi með að gera Sunnugerði að botnlangagötu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fá álit íbúa á tilrauninni og stytta lokunina frá áður ákveðnum tíma ef ástæða þykir til.

  2. Bæjarstjórn, fundur 227 liður 4.10

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 182“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is