Ráðningar í leik- og grunnskóla
Mál 1707101 Fyrst á dagskrá 24. júlí 2017, síðast 7. september 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Bæjarráð, fundur 528 liður 4
Lagður fram tölvupóstur formanns Foreldrafélags Leikskólans Kærabæjar þar sem lýst er yfir áhyggjum af mönnun leikskólans í haust.
Fræðslustjóri fór yfir ráðningar í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar en ennþá er óráðið í nokkrar stöður í grunn- og leikskólum.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur bréfritara og felur fræðslustjóra áframhaldandi vinnslu málsins í samráði við stjórnendur.
-
Bæjarstjórn, fundur 226 liður 3.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 528“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 43 liður 6
Fræðslustjóri gerði grein fyrir ráðningum nýrra starfsmanna í leik-, grunn- og tónlistarskóla Fjarðabyggðar. Fram kom að tekist hefði að ráða í flestar lausar stöður fyrir skólabyrjun og opna allar deildir leikskóla, grunn- og tónlistarskóla og frístundina. Á leikskólanum Lyngholti hefur nýjum börnum verið boðin vistun til 13:30, þar sem enn vantar starfsfólk til vinnu eftir hádegi, en vonir standa til að hægt verði að ráða og bjóða upp á fulla vistun á næstunni. Nemendum í bæði leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar er að fjölga á milli skólaára, sem aftur kallar á fleira starfsfólk. Fræðslunefnd fagnar fjölgun nemenda og því að tekist hafi að opna skólana með góðu starfsfólki og vonar að vel gangi að ráða í vetur, þegar taka þarf inn nýja nemendur. Jafnframt skorar fræðslunefnd á stýrihóp um Háksólasetur Austurlands að huga sérstaklega að námsframboði og námsaðstöðu fyrir þá sem vilja verða leik- og grunnskólakennarar.
-
Bæjarstjórn, fundur 227 liður 7.6
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 43“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.