Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Ytra mat á grunnskóla - Nesskóla

Mál 1707064 Fyrst á dagskrá 23. ágúst 2017, síðast 16. nóvember 2017. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Fræðslunefnd, fundur 43 liður 2

    Menntamálastofnun sér um framkvæmd ytra mats í leik-, grunn- og framhaldsskólum fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis. Skólar hafa verið valdir til ytra mats árið 2017 og Nesskóla er þar á meðal. Skólastarfið verður metið á haustönn 2017. Fræðslunefnd lýsir ánægju með valið, en bæði Grunnskólinn á Eskifirði og Grunnskóli Reyðarfjarðar fóru í slíkt mat 2014 og reyndist það bæði hvetjandi og gagnlegt fyrir skólastarfið. Þungamiðjan í matinu er a) stjórnun, b) nám- og kennsla og c) vinnubrögð við innra mat. Fræðslunefnd óskar matsmönnum og starfsfólki Nesskóla velfarnaðar í störfum sínum.

  2. Bæjarstjórn, fundur 227 liður 7.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 43“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Fræðslunefnd, fundur 48 liður 7

    Lagt fram til kynningar ytra mat Nesskóla. Matið fór fram í september s.l. þar sem kallað var eftir fyrirliggjandi gögnum frá skóla, fengnar niðurstöður samræmdra prófa og framfarastuðlar frá Menntamálastofnun, farið í vettvangsheimsókn 12.-14. september og í vettvangsskoðun í 21 kennslustund. Rýnihópaviðtöl voru tekin við kennara, aðra starfsmenn, foreldra og nemendur úr 4. - 10. bekk og fulltrúa úr skólaráði. Einstaklingsviðtal var tekið við skólastjóra og rætt við aðra stjórnendur sameiginlega. Fræðslunefnd lýsir ánægju með ytra matið þar sem nefndir eru sterkir þættir í skólastarfinu og bent á tækifæri til umbóta. Ytra matinu verður fylgt eftir með umbótaáætlun.

  4. Bæjarstjórn, fundur 232 liður 4.7

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 48“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is