740 Vindheimanaust 8 - byggingarleyfi - breytingar utanhúss og stækkun
Mál 1707052 Fyrst á dagskrá 11. júlí 2017, síðast 24. júlí 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 181 liður 11
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Guðmundar Skúlasonar fh. G.Skúlason vélaverkstæði ehf, dagsett 11. júlí 2017, þar sem óskað er eftir heimild til að staðsetja geymsluhúsnæði sem staðið hefur á lóð fyrirtækisins að Nesgötu 6 í n-a horni lóðarinnar við Vindheimanaust 8 á Norðfirði. Einnig er sótt um leyfi til að setja tvo glugga á austurhlið núverandi byggingar á lóðinni.
Samkvæmt deiliskipulagi svæðisins er ekki gert ráð fyrir stækkun bygginga á lóðinni.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að breyta deiliskipulagi Naust 1 svo hægt verði að auka byggingarmagn innan lóðarinnar. Farið verði með breytinguna sem óverulega breytingu.
Jafnframt samþykkir nefndin byggingaráform og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar búið er að breyta skipulagi og öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
Bæjarráð, fundur 528 liður 15.11
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 181“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.