Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Umsögn um unanþágu frá starfsleyfi vegna 3.000 tonna framleiðslu á regnbogasilungi í Fáskrúðsfirði

Mál 1706144 Á dagskrá 3. júlí 2017. 1 færsla í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Fáskrúðsfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  1. 2017

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 180 liður 5

    Lögð fram til kynningar umsögn HAUST, dagsett 20. júní 2017, f.h. Heilbrigðisnefndar Austurlands um erindi Fiskeldis Austfjarða hf. um undanþágu frá starfsleyfi vegna framleiðslu á 3000 tonnum af regnbogasilungi í Fáskrúðsfirði.

    Einnig lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna varðandi málið þar sem hann vekur athygli eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og bæjarráðs þess efnis að það kunni að vera tilefni til að gera athugasemd við stækkun kvíaþyrpingar á því eldissvæði sem ráðgert er innarlega í firðinum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna og umhverfisstjóra að fylgjast með ferlinu.