Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Tæknidagur fjölskyldunnar 2017

Mál 1705202 Fyrst á dagskrá 29. maí 2017, síðast 1. júní 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 523 liður 7

    Framlagt erindi Verkmenntaskóla Austurlands. Tæknidagur fjölskyldunnar verður haldinn í fimmta sinn laugardaginn 7.október nk. í Verkmenntaskóla Austurlands. Dagskráin fer fram í húsnæði skólans en einnig hefur íþróttahúsið í Neskaupstað verið leigt til þess að rúma dagskrána. Farið er þess á leit við bæjarráð Fjarðarbyggðar að sveitarfélagið styrki Tæknidaginn með því að fella niður leigu og ræstingarkostnað íþróttahússins.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja Verkmenntaskólann sem nemur leigu og þrifum íþróttahússins. Vísað til íþrótta- og tómstundafulltrúa. Jafnframt leggur bæjarráð til að Fjarðabyggðahafnir, veitur sveitarfélagsins og sorpmiðstöð taki þátt í tæknideginum og kynni starfsemi sína. Bæjarráð felur sviðsstjórum að undirbúa þátttökuna í samstarfi við upplýsingafulltrúa.

  2. Bæjarstjórn, fundur 224 liður 2.7

    Fundargerðin „Bæjarráð - 523“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is