750 Hafnargata 1 - framkvæmdaleyfi, efnistaka og fylling lóðar
Mál 1705159 Fyrst á dagskrá 19. maí 2017, síðast 1. júní 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdirHafnirLóðir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 177 liður 14
Lögð fram framkvæmdaleyfisumsókn Eflu Austurlands fh. Loðnuvinnslunnar hf ásamt uppdráttum, dagsett 19. maí 2017, þar sem sótt er um leyfi til að gera 6000 m2 landfyllingu austast á lóð fyrirtækisins að Hafnargötu 1 á Fáskrúðsfirði. Syðsti hluti fyllingar verður í sömu línu og núverandi fylling. Framan á fyllingu er gert ráð fyrir grjótvörn. Áætlað er að losa um 8000 m3 af efni nyrst og austast á lóðinni, laus skering eru um 2000 m3 og föst skering um 6000 m3. Losað efni verður fært í fyllingu. Skering og fylling til stækkunar er innan afmörkunar lóðarinnar að Hafnargötu 1 og samræmist deiliskipulagi Hafnarsvæðis 05 sem gildir um svæðið.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfið.
-
Bæjarstjórn, fundur 224 liður 4.14
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 177“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.