Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2017

Hljóðvist í skólahúsnæði

Mál 1704002 Fyrst á dagskrá 24. júlí 2017, síðast 17. ágúst 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdirSkólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2017

    Bæjarráð, fundur 528 liður 7

    Lögð fram skýrsla um tilraunaverkefni í hljóðvist sem Akureyrarkaupstaður, Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra, Kennarasamband Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Umhverfisstofnun og Vinnueftirlitið fóru í haustið 2015 til að kortleggja hvað í starfsumhverfi leikskóla valdi mestum hávaða og hvaða leiðir eru bestar til að sporna við hávaða og bæta hljóðvist í leikskólum.

    Í bréfi Sambands íslenskra sveitarfélag og Kennarasambands Íslands eru þeir sem koma að starfi og rekstri leik- og grunnskóla hvattir til að nýta sér niðurstöður verkefnisins í viðleitni sinni til að draga úr hávaða í skólum með það að markmiði að bæta öryggi, líðan og starfsumhverfi barna og fullorðinna.

    Vísað til fræðslunefndar og eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 226 liður 3.7

    Fundargerðin „Bæjarráð - 528“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is