Sjónvarpsþættir um hafnir
Mál 1703048 Fyrst á dagskrá 14. mars 2017, síðast 6. apríl 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Í heiti málsins: Hafnir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Hafnarstjórn, fundur 175 liður 5
Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 6. mars 2017 þar verið er að kanna áhuga hafna fyrir þátttöku í gerð kynningarþátt um starfsemi og umfang hafna. Auk þess býðst höfnunum að láta gera einn þátt fyrir sig. Framleiðslukostnaður við slíkan þátt er áætlaður um 540 þ.kr. auk ferðakostnaðar.
Hafnarstjórn samþykkir að taka þátt í gerð kynningarþáttar fyrir hafnirnar landsins og sérþátt fyrir Fjarðabyggðarhafnir.
-
Bæjarstjórn, fundur 220 liður 9.5
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 175“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.