Beiðni um efnistökuleyfi í botni Norðfjarðar vegna lokafrágangs landfyllingar í Norðfjarðarhöfn
Mál 1702114 Fyrst á dagskrá 16. febrúar 2017, síðast 2. mars 2017. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurHafnir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2017
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 169 liður 8
Hafnarsjóður Fjarðabyggðar óskar eftir framkvæmdarleyfi skv. skipulagslögum og á grunni stefnu í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 til að nema allt að 5.000 m3 efnis í norðanverðum Norðfjarðarósi, á fjöru 100m innan við ósinn.
Samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 fellur framkvæmdin undir flokk C í 1. viðauka laganna nr. 2.04 ?Efnistaka og/eða haugsetning á landi eða úr hafsbotni þar sem áætlað er að raska minna en 25.000 m2 svæði eða efnismagn er minna en 50.000 m3?.
Lesa alla bókunina (65 orð til viðbótar)
Fyrirhuguð efnistaka er á fjöru en innan netlaga og unnin af landi með þar til gerðum tækjum.
Ástæða efnistökunnar er vegna lokafrágangs 1. áfanga fyllingar á lóð undir nýtt netaverkstæði í Neskaupstað, efni vantar við stálþil framan við lóðina.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykktir beiðni Hafnarsjóðs um framkvæmdarleyfi til efnistöku á fjöru sunnan við smábátahöfnina í Norðfirði. Veiðifélag Norðfjarðar og Fiskistofa verða upplýst um málið.
-
Bæjarstjórn, fundur 218 liður 3.8
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 169“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.