Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2017
Mál 1611063 Á dagskrá 6. desember 2016. 1 færsla í fundargerðum hjá: Félagsmálanefnd.
Í heiti málsins: Styrkir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Félagsmálanefnd, fundur 90 liður 2
Borist hefur bréf frá Samtökum um kvennaathvarf þar sem óskað er eftir 350.000 kr. framlagi til samtakanna. Kvennaathvarfið hefur veitt skjól, stuðning og ráðgjöf konum og börnum sem hafa orðið fyrir heimilisofbeldi. Einnig veita samtökin símaráðgjöf sem er opin allan sólarhringinn og standa fyrir öflugu forvarnarstarfi. Félagsmálanefnd samþykkir að veita samtökunum styrk upp á kr. 150.000.