Fjárhagsáætlun 2016 - viðauki 4
Mál 1610077 Á dagskrá 13. október 2016. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarstjórn, fundur 208 liður 9
Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði.
Framlagður viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2016 vegna breytinga á launakostnaði Fjarðabyggðar í samræmi við samþykkt bæjarráðs 10. október 2016.
Lesa alla bókunina (128 orð til viðbótar)
Viðauki 4 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2016 er vegna breytinga á launakostnaði Fjarðabyggðar, annars vegar vegna endurmats á starfsmati slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna og hins vegar vegna leiðréttingar á villum í launaáætlunarhluta fjárhagsáætlunar ársins 2016. Heildaráhrif viðaukans eru til lækkunar á launakostnaði Fjarðabyggðar uppá um kr. 3.034.220.
Lagt er til að launaliðir verði lækkaðir um sem nemur kr. 3.034.220 í fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2016. Enn fremur er lagt til að fjármögnun þessa lækkunar launakostnaðar leggist við eigið fé Fjarðabyggðar.
Viðskiptastaða stofnana og félaga við Aðalsjóð mun breytast sem því nemur, þar sem það á við.
Handbært fé Aðalsjóðs mun hækka um kr. 3.034.220 til samræmis við ofangreint og verða kr. 152.135.000 í árslok 2016
Enginn tók til máls.
Viðauki 4 við fjárhagsáætlun 2016 staðfestur með 9 atkvæðum.