Framlög vegna stuðnings við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda
Mál 1609120 Fyrst á dagskrá 21. september 2016, síðast 29. september 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Fræðslunefnd, fundur 31 liður 3
Ræddar voru nýjar reglur um framlög vegna stuðnings við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda sem undirritaðar voru 13. apríl 2016. Eins og staðan er í dag eru engir nemendur í tónlistarskólunum í Fjarðabyggð sem lokið hafa að fullu miðnámi í hljóðfæraleik eða grunn- eða miðnámi í söng og því sækja skólarnir í Fjarðabyggð ekki um framlög úr jöfnunarsjóði vegna þeirrar kennslu. Hins vegar sækir sveitarfélagið um styrk vegna hljóðfæranáms nemenda í grunn- og miðnámi sem stunda nám í tónlistarskólum utan lögheimilissveitarfélags, en sá styrkur getur að hámarki verið 50% af kostnaði við námið og ræðst einnig af því hvort fjárframlög eru til staðar. Fræðslunefnd telur mjög mikilvægt að jöfnunarsjóður styrki sveitarfélagið með greiðslu 50% kostnaðar af tónlistarnámi þessara nemenda en það er forsenda þess að hægt sé að tala um að verið sé að vinna að jöfnun á aðstöðumun.
-
Bæjarstjórn, fundur 207 liður 6.3
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 31“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.