Reglur um móttöku nýrra starfsmanna 2016
Mál 1609057 Fyrst á dagskrá 12. september 2016, síðast 15. september 2016. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 488 liður 19
Reglur lagðar fram til afgreiðslu í bæjarráði og staðfestingar í bæjarstjórn. Bæjaráð samþykkir fyrir sitt leyti reglurnar og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar. Jafnframt er bæjarstjóra, bæjarritara og forstöðumanni stjórnsýslusviðs falið að yfirfara orðalag.
-
Bæjarstjórn, fundur 206 liður 18
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Reglur um móttöku nýrra starfsmanna samþykktar með 9 atkvæðum.
Jafnframt er felld úr gildi reglur um móttöku nýrra starfsmanna frá 29. ágúst 2012.
-
Bæjarstjórn, fundur 206 liður 2.19
Fundargerðin „Bæjarráð - 488“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.