Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga 2016-2017
Mál 1609025 Fyrst á dagskrá 19. september 2016, síðast 29. september 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 154 liður 4
Lagt fram bréf Ormarrs Örlygssonar fh. Alcoa Fjarðaál, dagsett 5. ágúst 2016, þar sem óskað er eftir framlengingu stöðuleyfis starfsmannabúðanna að Högum. Jafnframt er óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til þess að skuldbindingum Alcoa Fjarðaáls vegna hreinsunar, tæmingar og skila á svæðinu, verði á ábyrgð eiganda starfsmannabúðanna.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir útgáfu stöðuleyfis á sömu forsendum og árið 2015 og miðast það við þann fjölda gámaeininga sem var á svæðinu þegar stöðuleyfið rann út þann 1. júlí 2016. Nefndin samþykkir ekki að skuldbindingar Alcoa Fjarðaáls vegna starfsmannabúðanna verði á ábyrgð eiganda starfsmannabúðanna.
-
Bæjarstjórn, fundur 207 liður 5.4
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 154“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.