Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Starfsleyfi fyrir nýja leikskólann Eyrarvellir

Mál 1609019 Fyrst á dagskrá 21. september 2016, síðast 29. september 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Fræðslunefnd, fundur 31 liður 2

    Fyrir liggur bréf frá foreldrafélagi leikskólans Eyrarvalla þar sem kemur fram að foreldrar lýsa áhyggjum yfir því að formlegt starfsleyfi var ekki komið þegar skólinn opnaði 18. ágúst. Fræðslustjóri greindi frá því að leikskólinn Eyrarvellir hefði fengið formlegt starfsleyfi innan við viku eftir að skólinn tók til starfa en úttekt á húsnæðinu hafði átt sér stað áður en skólinn opnaði. Fræðslustjóri gerði jafnframt grein fyrir velheppnaðri og fjölmennri opnunarhátíð laugardaginn 17. september. Fræðslustjóri greindi frá því að skólinn hefði fengið margar góðar gjafir, m.a. spjaldtölvur, skjávarpa og fjölmörg vegleg leiktæki. Skólastarf fer vel af stað í nýja húsnæðinu og verið er að ljúka síðustu verkþáttum á lóð. Einnig kom fram að framkvæmdir á Nesgötu væru að hefjast en þær munu auka umferðaröryggi til muna.

  2. Bæjarstjórn, fundur 207 liður 6.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 31“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is