Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Kosningavakning ungs fólks

Mál 1609010 Fyrst á dagskrá 21. september 2016, síðast 29. september 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Fræðslunefnd, fundur 31 liður 1

    Til umræðu var bréf frá innanríkisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra til framhaldsskóla og grunnskóla á landinu þar sem skólar voru hvattir til að nýta tækifæri sem skapast til lýðræðislegrar umræðu í tengslum við alþingiskosningar. Í bréfinu er einnig komið inn á mikilvægi þess að læra um lýðræði í lýðræði. Fræðslustjóri hefur verið í sambandi við grunnskólana í Fjarðabyggð í framhaldi af bréfi ráðherranna. Í skólunum er lýðræði og mannréttindum mikið sinnt þar sem hér er um að ræða einn af sex grunnþáttum menntunar. Meðal annars má nefna að kosningar fara fram í nemendaráð og ungmennaráð og einnig var í nokkrum skólum skuggakosningar í tengslum við forsetakosningarnar í vor. Nemendur hafa einnig meiri áhrif en áður á kennsluhætti, val á viðfangsefnum og skólastarfið almennt. Skólarnir hafa allir tekið bréfið til skoðunar. Hugmyndir eru komnar fram um að halda skuggakosningar fyrir börn á aldrinum 13-18 ára í tengslum við alþingiskosningar í haust. Bæjarráð hefur fjallað um málið og er að skoða hugsanlegar útfærslur í samráði við ungmennaráð. Fræðslunefnd lýsir ánægju með að efldur hafi verið þáttur lýðræðis og mannréttinda í skólum Fjarðabyggðar og lýst vel á hugmyndir bæjarráðs um skuggakosningar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 207 liður 6.1

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 31“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is